flugfréttir
Norwegian slær farþegamet
- Aldrei eins margir farþegar í einum mánuði með flugfélaginu norska
Næstum 3.8 milljónir farþega flugu með Norwegian í júlí sem er nýtt farþegamet hjá félaginu
Aldrei áður hafa eins margir farþegar flogið með Norwegian í einum mánuði líkt og í júlí þegar næstum 3.8 milljónir farþega flugu með félaginu eða um 120.000 farþegar á dag.
Þetta er um 13% aukning frá því í júlí 2017 en sætanýtingin mældist 93 prósent í seinasta mánuði.
Aðeins þurfti að aflýsa 0.8% af öllum þeim flugferðum sem farnar voru samkvæmt áætlun og voru 67.9% af þeim
brottförum á réttum tíma en miklar seinkanir voru í júlí sökum verkfalls meðal flugumferðarstjóra í Evrópu.
Norwegian hefur í dag 160 flugvélar í flota sínum af gerðinni Boeing 737-800, Boeing 737 MAX og Dreamliner en vélarnar
skiptast niður í flota Norwegian Long Haul, Norwegian Air International, Norwegian Air UK og Norwegian
Air Argentina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.