flugfréttir
Eldsneytisatvik með fyrstu A321neo þotu Primera Air
Fyrsta Airbus A321neo þota Primera Air (OY-PAA)
Greint hefur verið frá atviki þar sem eldsneytisskortur kom upp í fyrstu Airbus A321neo þotu Primera Air í lok júlímánaðar er þotan var í flugi yfir Atlantshafið til Toronto.
Um var að ræða áætlunarflug frá London Stansted til Toronto þann 24. júlí og
kemur fram í tilkynningu frá kanadískum flugmálayfirvöldum að flugmennirnir hafi lýst yfir neyðarástandi í lækkun vegna eldsneytismagnsins sem eftir var.
Vélin fékk forgang til að koma inn til lendingar. Skömmu síðar, þegar vélin var í aðfluginu í 8.000 fetum klukkan 21:00, spurðu aðflugsumsjónarmenn
áhöfnina um stöðuna á eldsneytinu og svöruðu flugmennirnir því að þeir hefðu 2.3 tonn
um borð og myndu lenda með 2.1 tonn.
Þotan lenti á braut 23 klukkan 21:10 á Pearson-flugvellinum í Toronto án vankvæða.
Primera Air tók við fyrstu Airbus A321neo þotunni í apríl í vor en vélarnar voru
pantaðar til þess að fljúga nýjar flugleiðir frá Bretlandi og Frakklandi til
Ameríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.