flugfréttir

Hitabylgjan í Evrópu mögulega ein orsök flugslyssins í Sviss

- Talið að Junkers-flugvélin hafi farið í ofris vegna lítillar afkastagetu í hitanum

7. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:54

Flak Junkers-flugvélarinnar í Ölpunum

Talið er mögulegt að hitabylgjan í Evrópu gæti hafi verið einn orsakavaldur flugslyssins í Sviss er 79 ára gömul flugvél af gerðinni Junkers Ju-52 fórst í Ölpunum sl. laugardag.

Flugvélin, sem var smíðuð árið 1939, var í útsýnisflugi með 17 farþega innanborðs og þrjá í áhöfn á leið frá Locorno til Dübendorf í Sviss þegar vélin missti hæð og steyptist næstum lóðrétt til jarðar.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Sviss vinnur nú að rannsókn slyssins ásamt svissnesku lögreglunni en á blaðamannafundi á sunnudag kom fram að vélin hafi fallið til jarðar á miklum hraða.

Daniel Knecht á blaðamannafundi eftir flugslysið

„Hún féll beint niður eins og steinn til jarðar“, sagði talsmaður rannsóknarnefndarinnar sem tók fram að möguleiki sé á því að hitabylgjan í Evrópu hafi átt hlut að máli þar sem mikill lofthiti skerðir flugeiginleika flugvéla.

Heitt loft er þynnra en kalt loft sem getur skert afkastagetu flugvélar sem þarf meira afl þeim mun heitara sem loftið er. Einnig þynnist loftið þeim mun hærra sem flogið er en flugvélin sem fórst var í 8.300 feta hæð yfir sjávarmáli er hún missti hæð og féll til jarðar.

„Hitinn skaðar ekki flugvélina sjálfa en hann getur haft áhrif á hvernig hún flýgur og í miklum hita þá þynnist loftið og þá hefur flugvélin minna afl en hún hefði vanalega“, segir Daniel Knecht hjá svissnesku rannsóknarnefndinni.

Flugvélin sem fórst bar skráninguna HB-HOT

Svo mikill hiti hefur verið í Sviss að svissneski flugherinn hafði gefið hermönnum leyfi fyrir því að klæðast stuttbuxum og stuttermabolum og þá voru hundaeigendur í Sviss varaðir við því að fara í göngutúr með hunda sína á götum og gangstéttum þar sem þær voru sjóðandi heitar í hitanum.

Mögulegt að flugvélin hafi farið í ofris í þunnu lofti

Augljóst er að rannsókn á slysinu verður erfið þar sem enginn flugriti er um borð í Junkers-vélunum og verður því aðeins hægt að styðjast við greiningu á flaki vélarinnar og á frásögn sjónarvotta.

Björgunarlið að störfum í hlíðum Alpanna

Knecht segir að ekkert neyðarkall hafi komið frá flugvélinni og sé hægt að útiloka að hún hafi flogið á vír frá rafmagnsmastri en hinsvegar hafi sjónarvottar greint frá því að vélin hafi „skoppað“ og flogið með nefið upp og niður á víxl áður en hún missti hæð.

Það þykir benda til þess að vélin hafi verið komin í ofris sem á sér stað þegar loftflæði um vængina er orðið það lítið sem gerist þegar flughraði fellur niður eða þegar álagshornið á vængina er orðið of mikið að hún helst ekki lengur á lofti.

Til að komast úr ofrisi þarf flugvél að steypa sér niður með nefið niður til að ná aftur upp flughraða sem hægt er ef nægileg flughæð er til staðar en í þessu tilviki var flugvélin að fara yfir fjalllendi sem var rétt fyrir neðan.

Fyrirtækið JU-Air hefur starfrækt Junkers-flugvélarnar frá árinu 1982

Voru þaulreyndir flugmenn með yfir 30 ára flugferil að baki

Ekki er þó enn hægt að útiloka aðra þætti þar sem mögulegt er að annar flugmannanna gæti hafa veikst skyndilega en Jürgen Schelling, flugsérfræðingur, bendir á að ef annar flugmannanna hefði fengið hjartaáfall gæti hann hafa lagst framan á stýrið og hinn flugmaðurinn ekki náð að grípa við stjórn vélarinnar í tæka tíð. Jürgen segir að krufning þurfi þó að leiða slíkt í ljós.

Kurt Waldmeier, annar stofnandi JU-Air, segir að flugmennirnir, sem flugu Junkers-flugvélinni, hafi verið mjög vanir og reyndir flugmenn. Annar þeirra, Ruedi J, var 62 ára gamall og hafði hann flogið í 30 ár fyrir SWISS International Air Lines þar sem hann var flugstjóri bæði á Airbus A330 og A340 breiðþotur og einnig flaug hann fyrir Swissair.

Rudi hafði flogið fyrir svissneska flugherinn í 28 ár áður en hann byrjaði að fljúga fyrir svissnesku flugfélögin en hann hafði flogið Junkers Ju-52 flugvélunum síðan árið 2004 og var með 943 flugtíma á vélina.

Aðstoðarflugmaðurinn, Peter M, var 63 ára og hafði hann einnig flogið í atvinnuflugi í meira en 30 ár, bæði fyrir flugfélög og fyrir flugherinn.

Tvær Junkers Ju-52 flugvélar á flugi frá JU-Air

Peter hafði flogið Junkers Ju-52 flugvélunum frá árinu 2013 og var með 297 flugtíma á flugvélarnar. Hann hafði einnig flogið Airbus A340 og A330 þotum hjá SWISS auk þess sem hann flaug áður fyrir Swissair og flugfélagið Eidelweiss.

Waldmeier segir að aldur flugvélarinnar hafi ekki haft neinn hlut að máli þar sem flotanum hefur verið haldið mjög vel við.

Hætta flugrekstri með Junkers-flugvélunum tímabundið

Í yfirlýsingu frá JU-Air kemur fram að flugvélin sem fórst, sem bar skráninguna HB-HOT, hafi ætíð verið haldið við og var vélin í góðu ásigkomulagi en seinasta skoðun fór fram í lok júlí.

Svissneski flugrekandinn JU-Air hefur tilkynnt að fyrirtækið muni hætta flugrekstri um óákveðinn tíma í kjölfar flugslyssins þann 4. ágúst er gömul flugvél af gerðinni Junkers Ju-52 fórst í svissnesku Ölpunum.

JU-Air hefur einnig tvær aðrar Junkers Ju-52 flugvélar í flotanum en HB-HOT var í flota svissneska flughersins frá árinu 1939 til 1985.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga