flugfréttir
519.000 farþegar flugu með Icelandair í júlí
- 5 prósent færri farþegar en í júlí 2017 þegar 545.000 flugu með félaginu
TF-ISX, „Fullveldisvélin“ á Vantaa-flugvellinum í Helsinki
Alls voru 519 þúsund farþegar sem flugu með Icelandair í seinasta júlímánuði sem er 5 prósentum færri en sá fjöldi sem flaug með félaginu í júlí 2017 þegar 545.000 farþegar flugu með félaginu.
Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 2% en framboðnum sætum fækkaði um 3% á milli ára og skýrist munurinn af því að með auknu framboði til N-Ameríku hefur meðalfluglengd í
kílómetrum aukist milli ára eða sem nemur 5%.
Sætanýting var 85,3% samanborið við við 89,2% í júlí á síðasta ári. Í júlí er sama þróun og var á öðrum ársfjórðungi. Sala á áfangastaði í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan að sala til Evrópu hefur verið mjög góð.
Til samanburðar þá var sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu 90,7% og jókst um 2,9 prósentustig á milli ára á meðan að sætanýting á leiðum félagsins til N-Ameríku var 81,9% og lækkaði um 8,9 prósentustig á milli ára.
Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi og ferðamannamarkaðinum til Íslands jókst á milli ára en dróst saman á N-Atlantshafsmarkaðinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.