flugfréttir
Frakkar ætla að hefja rannsókn á hvarfi flugs MH370
- Segja lokaskýrsluna frá stjórnvöldum í Malasíu óviðunandi
Franska fyrirtækið Gendarmerie of Air Transport (GTA) er ekki sátt við lokaskýrsluna sem stjórnvöld í Malasíu birtu þann 30. júlí
Frakkar hafa lýst því yfir að þeir ætli að taka að sér rannsókn á hvarfi malasísku farþegaþotunnar í ljósi þess að stjórnvöld í Malasíu láðist að komast að orsök hvarfsins með útgáfu á lokaskýrslu án neinnar niðurstöðu.
Samkvæmt franska dagblaðinu Le Parisien þá kemur fram að franskir flugslysasérfræðingar
séu staðráðnir í að fara yfir öll gögn frá breska gervitunglafyrirtækinu Inmarsat sem meðtók
merki frá malasísku þotunni sem benti til þess að hún hefði flogið lengst suður í Indlandshafi en meðal þess sem til stendur að rannsaka er hvort að þau gögn eigi við rök að styðjast.
Það er rannsóknarnefnd flugslysa á vegum franska flughersins sem ætlar að taka rannsóknina
að sér í ljósi þess að meðal farþegar voru fjórir franskir ríkisborgarar sem voru um borð er þotan
hvarf þann 8. mars árið 2014.
Meðal frakkanna í flugi MH370 var kona að nafni Laurence Wattrelos sem ferðaðist
ásamt 14 ára dóttur sinni, Amber. 17 ára gamall sonur hennar, Hadrien, og unnusta hans, Yan, sem
var franskur ríkisborgari en fædd í Kína.
Eitt af þeim fáum brotum sem hafa fundist úr malasísku farþegaþotunni, sem búið er að sanna að
tilheyri flugi MH370, er flaperon-vængbarð sem skolaði á land á eyjunni Réunion sem er frönsk
eyja í Indlandshafi.
Frakkar eru staðráðnir í að komast til botns í hvarfinu á flugi MH370
Flestar þjóðir hafa gefist upp á leitinni að MH370
Yfirvöld í Fraklandi hafa ekki gefið út neina formlega yfirlýsingu um neina rannsókn
varðandi hvarf MH370 en stjórnvöld í landinu sögðu á sínum tíma að mjög erfiðlega hefði gengið
að fá gögn frá Boeing varðandi það brak sem skolaði á land á Réunion-eyjunni í ágúst árið 2015.
Flest lönd, sem komu að leitinni að malasísku farþegaþotunni, hafa í dag gefist upp nema Frakkland
en í frétt Le Parisien kemur fram að Frakkar séu þeir einu sem vilja komast til botns í málinu.
„Malasísk stjórnvöld birtu nýlega 449 blaðsíðna lokaskýrslu þar sem engar niðurstöður koma fram,
engin sönnunargöng, engar vísbendingar né tilgátur og er skýrslan mjög óljós og ruglingsleg“, segir
í tilkynningu.
Stjórnherbergi í breska fyrirtækinu Inmarsat
Ennfremur gagngrýna Frakkar að hvergi í skýrslunni sé minnst um möguleika á aðkomu
utanaðkomandi aðila né að tilraun hafi verið gerð til þess að rannsaka einhverja af þeim
fjölmörgu samsæriskenningum sem spruttu upp í kjölfar hvarfsins
en áhugaleysi á að rannsaka þá þætti endurspeglar að verið sé að hylma yfir sannleikann.
Frakkar vilja komast að því hvort að öll þau gögn sem Inmarsat gaf frá sér skömmu eftir hvarfið
eigi við rök að styðjast og þann möguleika er breska fyrirtækið sé að hylma yfir hvert flugvélin flaug í raun og veru og það í samræði við stjórnvöld einhvers lands.
Meðal samsæriskenninga sem hafa komið fram varðandi hvarf MH370 eru tilgátur um að malasíski flugherinn hafi skotið þotuna óvart niður á heræfingu við Tælandsflóa, að vélinni hafi verið rænt, að dýrmætur búnaður hafi verið um borð sem bandarísk stjórnvöld hafi viljað koma í veg fyrir að færi til Kína og einnig um að flugstjóri vélarinnar hafi grandað vélinni vísvitandi.
Lokaskýrslan vegna flugs MH370 kom út þann 30. júlí og olli hún miklum vonbrigðum
fyrir aðstandendur og fjölskyldur þeirra sem voru um borð í flugvélinni þar sem skilaboðinu
voru á þá leið að stjórnvöld hafa ekki hugmynd um hvar flugvélin er og ætli sér ekki að halda
leitinni áfram.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.