flugfréttir

Interjet fær 4.2 milljarða í bætur frá Sukhoi

8. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:44

Sukhoi Superjet 100 þotur Interjet

Mexíkóska flugfélagið Interjet hefur fengið greiddar bætur frá Sukhoi framleiðandanum upp á 4,2 milljarða króna vegna viðhaldskostnaðar sem félagið hefur þurft að leggja út fyrir vegna Sukhoi Superjet 100 þotnanna.

Interjet neyddist til þess að leggja fjórum Sukhoi Superjet 100 þotum árið 2017 en vegna seinkanna á varahlutum þá þurfti félagið meðal annars að taka varahluti úr þotunum fjórum til að halda hinum þotunum átján á flugi.

„Tímabundin fjarlæging á varahlutum er ekki niðurrif“, sagði varaformaður Superjet International í janúar á þessu ári er hann þvertók fyrir þær sögusagnir um að Interjet hefði þurft að hefja niðurrif á fjórum SSJ100 þotum til að halda flotanum gangandi.

Viðhaldskostnaður Interjet jókst um 21% í fyrra en flugfélagið þurfti að verja 3,7 milljörðum króna í viðbótarviðgerðir, viðhald og umstang vegna vandamálsins með skort á varahlutum frá Sukhoi.

Fyrst fór að bera á vandamálum með viðhald Sukhoi-vélanna í fyrra eftir að Rússar tilkynntu um vandamál í PowerJet SaM146 hreyflum vélanna og ákvað Interjet þá að leggja fjórum þotum. 

Sukhoi Superjet 100 var álitin besti kosturinn fyrir Interjet vegna þess hita sem ríkir í Mexíkó og hæðar yfir sjávarmáli og þótti vélin henta vel fyrir þá áfangastaði sem félagið flýgur til. 

Margir segja að það hafi verið mjög djörf ákvörðun hjá Interjet árið 2012 að panta farþegaþotu frá Rússum en vélin var helmingi ódýrari en sambærilegar vélar frá samkeppnisaðilum á borð við Embraer og Bombardier. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga