flugfréttir
Jón Karl hættir hjá Isavia
- Lætur af störfum sem framkvæmdarstjóri yfir flugvallarsviði
Jón Karl Ólafsson, tók við starfi framkvæmdarstjóra flugvallarsviðs hjá Isavia fyrir þremur árum síðan
Jón Karl Ólafsson, framkvæmdarstjóri yfir flugvallarsviði hjá Isavia, lætur af störfum og hefur hann sagt starfi sínu lausu.
Jón Karl hóf störf hjá Isavia árið 2015 en hann hefur meðal annars unnið með ýmsar hugmyndir
að breytingum á flugvallarrekstri og á rekstarformi þeirra.
„Þær hugmyndir sem Jón kynnti að breyttu rekstrarfyrirkomulagi hafa ekki náð í gegn ennþá en við vonumst til þess að þær nái að hreyfa við fólki og fá það til að hugsa
öðruvísi um rekstur flugvalla sem hluta af almenningssamgöngukerfi“, segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
Jón Karl segir m.a. að mikill árangur hefur náðst í starfstíð Jóns en til að mynda setti ríkið á stofn sjóð til þess að styðja við alþjóðaflug um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Við tekur nú leitl að eftirmanni Jóns sem getur haldið áfram að byggja á þeim grunni sem Jón Karl hefur lagt og þakkar Isavia honum fyrir frábært starf í gegnum árin.
„Ég vil þakka öllum samstarfsmönnum hjá Isavia kærlega fyrir samstarfið og ég óska ykkur og fyrirtækinu alls hins besta í þeim miklu og mikilvægu verkefnum sem fram undan
eru“, segir Jón Karl.
Björn Óli Hauksson mun taka við stjórn flugvallarsviðs þar til að ráðið hefur verið í starfið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.