flugfréttir
Styttist í opnun á nýrri 737 MAX afhendingarmiðstöð í Kína
Tölvugerð mynd af afhendingarmiðstöð Boeing og COMAC í Zhoushan
Boeing hefur hraðað ráðningarferli á starfsmönnum sem munu koma til með að starfa við nýja frágangs- og afhendingarmiðstöð fyrir Boeing 737 MAX þotur sem tekin verður í noktun í Kína á næstunni.
Boeing tilkynnti í vor að vonast væri til að starfsemi miðstöðvarinnar gæti hafist að einhverju leyti fyrir lok
þess árs en til stendur að nýjar Boeing 737 MAX þotur, sem settar verða saman í Renton fyrir Asíumarkað, verði flogið
ómáluðum til Kína þar sem málningarvinna mun fara fram fyrir afhendingu auk þess sem innréttingum verður komið fyrir í þotunum í miðstöðinni.
Frágangsmiðstöðin, sem einnig verður afhendingarmiðstöð, verður notuð sameiginlega af Boeing
og kínversku flugvélaverksmiðjunni COMAC en hún mun rísa í borginni Zhoushan, skammt suður af Shanghai.
Fram kemur að Kína verður stærsti viðskiptavinur Boeing innan 20 ára en Boeing hefur fjárfest í
afhendingarmiðstöðinni fyrir 3,5 milljarða króna.
Til stendur að taka afhendingarmiðstöðina í notkun síðar á þessu ári
Boeing hefur nýlega auglýst 38 stöður sem ráðið verður í fyrir miðstöðina í Kína en meðal annars er auglýst
eftir yfirmanni með málningarvinnu, eldvarnar- og öryggisfulltrúa, öryggisráðgjafa, yfirmann sem fer
með umhverfis- og heilbrigðismál, upplýsingatæknifulltrúa, gjaldkera og ráðningarfulltrúa.
Ein af hverjum þremur Boeing 737 MAX þotum sem framleiddar eru í Renton eru smíðaðar fyrir
kínversk flugfélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.