flugfréttir
Norwegian mun fljúga til Brasilíu
- Ætla að fljúga frá London til São Paulo og Rio de Janeiro
Norwegian á enn eftir að fá svar við umsókninni frá brasilískum flugmálayfirvöldum en stefnt er á að hefja flug til Rio de Janeiro í nóvember
Norwegian ætlar í nóvember í haust að ryðja sér leið inn á Brasilíumarkað og hefur félagið sótt um leyfi til þess að hefja áætlunarflug á milli London og Brasilíu.
Brasilísk flugmálayfirvöld hafa fjóra mánuði til þess að fara yfir umsóknina og svara Norwegian varðandi leyfið
en í kjölfar þess gæti Norwegian byrjað að selja fyrstu flugmiðana.
„Við erum að horfa til Brasilíu sem er mjög áhugaverður markaður og þá sérstaklega frá London
þar sem samkeppni er lítil og verð á farmiðum eru mjög hátt“, segir talsmaður Norwegian.
Norwegian ætlar sé að hefja flug til São Paulo og til Rio de Janeiro og yrði sennilega flogið þangað nokkrum
sinnum í viku en nú þegar hefur félagið ákveðið að hefja flug til Rio de Janeiro frá London Gatwick frá og með 21. nóvember.
Aðeins tvö flugfélög fljúga milli Brasilíu og London sem eru British Airways sem flýgur í dag bæði til São Paulo og Rio de Janeiro frá London Heathrow auk þess sem LATAM flýgur til London Heathrow.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.