flugfréttir
Fyrsti Draumfari Qatar á Farnborough Air Show
Tölvuteikning af Dreamliner-vél Qatar
Fyrsta Dreamliner-vél Qatar Airways mun taka þátt í Farnborough-flugsýningunni sem fram fer á Englandi í júlí í sumar.
Vélin mun bæði verða til sýnis og fljúga sýningarflug meðal þeirra fjölda flugvéla sem munu verða til
sýnis.
Farnborough Air Show verður haldin í 48. skiptið í ár og hefst þann 9. júlí og stendur yfir til 13. júlí.
Meðal flugvélaframleiðanda sem munu taka þátt í sýningunni má nefna er Airbus, Boeing, Sukhoi, Bombardier, Cessna, Antonov,
ATR, BEA Systems, Cirrus, Hawker Beechcraft, Lockhead Martin og margir fleiri ásamt fjölmörgum fyrirtækjum
sem að fluginu koma.
Farnborough Air Show er með þeim stærri flugsýningum sem haldnar eru en í fyrra voru yfir 150.000 manns sem sóttu sýninguna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.