flugfréttir

Mest þörf fyrir fleiri flugfreyjur og starfsfólk á flugvöllum

21. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:24

Mikil eftirspurn verður til að mynda eftir starfsfólki á flugvöllum á næstu árum

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hefur birt niðurstöður úr könnun þar sem fram kemur hvar verður mest eftirspurn eftir starfsfólki í störfum innan flugsins á næstu árum.

Niðurstöðurnar byggja á könnun þar sem fjölmörg fyrirtæki í flugtengdum iðnaði tóku þátt í rannsókninni ásamt sérfræðingum sem starfa við ráðningar og mannauðsmál.

Í ljós kemur að mest verður þörf á starfsfólki á flugvöllum sem snýr að daglegum rekstri við flugstöðvar og í farþegaþjónustu auk þess sem mikil vöntun verður á flugfreyjum og flugþjónum.

48% aðspurðra telja að leitin af starfsfólki í þessar stöður eigi eftir að verða krefjandi vegna skorts á hæfu starfsfólki auk þess sem launin hafa ekki alltaf náð að uppfylla væntingar umsækjenda.

Flestir eru á því máli að nauðsynlegt sé að umsækjendur búi yfir ríkri þjónustulund sem er skilyrði er kemur að ráðningum í þjónustustörf fyrir farþega og þrátt fyrir að tækninni hafi fleygt fram þá muni tölvur og tækninýjungar ekki leysa þau störf af hólmi.

Guy Brazeau, yfirmðaur yfir þjálfun- og ráðgjafardeild IATA, segir að mikil fjölgun flugfarþega í heiminum kallar á að fyrirtæki í fluginu vandi valið er kemur að ráðningum í ýmiss störf.

Rannsóknin kom ekki inn á yfirvofandi skort á flugmönnum og flugvirkjum þar sem því hefur verið gerð skil sérstaklega í annarri rannsókn á vegum IATA.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga