flugfréttir

Flugfloti Flugakademíu Keilis telur nú 14 kennsluvélar

- Tvær nýjar Diamond DA40 komu til landsins í gær

23. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:24

TF-KFL og TF-KFM komu til landsins í gær eftir langt ferðalag frá Austurríki

Flugakademía Keilis fékk í gær tvær splunkunýjar Diamond DA40 kennsluvélar afhentar en vélunum var flogið hingað til lands frá verksmiðjum Diamond í Austurríki.

Floti skólans telur nú samtals fjórtán Diamond flugvélar, en með komu nýju vélanna hefur skólinn yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í norður Evrópu.

Diamond DA40 er eins hreyfils, fjögurra sæta flugvél sem hefur notið mikill vinsælda meðal flugskóla víða um heim og eru þær eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum.

Skólinn hefur nú yfir að ráða samtals átta DA40 fjögurra sæta vélar, fimm DA20 tveggja sæta vélar og eina tveggja hreyfja DA42 kennsluvél.

Slökkviliðsbílar mynduðu heiðursboga á Keflavíkurflugvelli er nýju flugvélarnar komu til landsins

Þá tók Flugakademían nýverið í notkun fullkominn flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans og bættist hann við núverandi Redbird hreyfanlegan flughermi skólans.

Fullbókað í atvinnuflugmannsnámskeið líkt og undanfarin ár

Á þriðja hundrað nemendur stunda nú atvinnuflugnám í Flugakademíu Keilis. Aukin ásókn hefur verið í námið á undanförnum misserum og var fullbókað í bæði samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám í ágúst, og mikil eftirspurn eftir næstu námskeiðum í byrjun ársins 2019.

Vegna mikillar aðsóknar í flugnám er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst en næstu lausu námskeið verða á næsta ári.

Nánari upplýsingar um flugvélaflota Flugakademíu Keilis má nálgast á heimasíðu Keilis: keilir.net/flugakademia/um-flugakademiuna/flugfloti







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga