flugfréttir

Cadet-flugnám Icelandair á Nýja-Sjálandi

- Icelandair semur við breska flugskóla L3 Commercial Aviation um námsbraut

23. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:12

Boeing 737 MAX þota Icelandair

Icelandair og breski flugskólinn L3 Commercial Aviation hafa gert samkomulag um að skólinn taki inn, þjálfi og útskrifi verðandi flugmenn félagsins.

L3 skólinn verður hluti af þeirri námsbraut sem Icelandair setti af stað á síðasta ári m.a. í samstarfi við Flugakademíu Keilis og Flugskóla Íslands til þess að styðja áframhaldandi vöxt félagsins og tryggja hæft starfsfólk til framtíðar.

Icelandair mun aðstoða nemendur við fjármögnun námsins hjá L3, líkt og öðrum skólum í námsbrautinni, og þeir nemendur sem standast kröfur Icelandair munu njóta forgangs til starfa hjá félaginu að námi loknu. Námið er öllum opið gegn ákveðnum skilyrðum, m.a. íslenskukunnáttu, en ekki er gerð krafa um að umsækjendur hafi nú þegar hafið flugnám.  

L3 Commercial Aviation skólinn er með starfsemi víða um heim

L3 Commercial Aviation skólinn er með starfsemi víða um heim og útskrifar í heild um 1500 flugmenn frá ýmsum löndum á þessu ári. Gert er ráð fyrir að íslensku flugnemarnir hefji sitt nám í starfsstöð skólans á Nýja Sjálandi.  

„Þessi leið við nám og þjálfun nýrra flugmanna sem við settum af stað í fyrra hefur gengið vel og gott að geta styrkt það enn frekar með samningi við þennan viðurkennda og öfluga flugskóla.“, segir Þ. Haukur Reynisson flugrekstrarstjóri Icelandair.

Nánari upplýsingar um námsbrautina og skráning á kynningarfundi í næstu viku er á icelandair.com/is/blogg/flugmenn-til-framtidar







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga