flugfréttir

Skortur á flugmönnum fyrir nýjar þotur hjá SAS Ireland

- Skrá tvær nýjar A320neo þotur í Svíðþjóð í stað Írlands

24. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:57

Airbus A320neo þota SAS

Nokkrar af næstu Airbus A320neo þotum sem SAS Ireland fær afhentar á næstu mánuðum munu fara í staðinn í flota SAS í Skandínavíu þar sem fleiri flugmenn eru tiltækir til þess að fljúga þeim á Norðurlöndunum.

Samkvæmt áætlun átti SAS Ireland að vera komið með átta nýjar Airbus A320neo þotur fyrir lok þessa árs en félagið hefur í dag fengið sjö þotur afhentar.

Verið er að undirbúa áttundu þotuna fyrir afhendingu og átti hún að fá skráninguna EI-SIG en hætt hefur verið við írska skráningu og er sú þota komin með skráninguna SE-ROP og fer hún til SAS í Svíþjóð.

Ástæðan fyrir því að móðurfélagið ætlar ekki að setja fleiri A320neo þotur í flota SAS Ireland er vegna skorts á flugmönnum og gildir það sama um níunda þotuna, SE-RON, sem átti að vera skráð sem EI-SII.

Ekki hefur verið hætt við að stækka flota SAS Ireland en í augnarblikinu er ráðningarfyrirtækið CAE Parc Aviation í leit að flugstjórum og flugmönnum til að fljúga fleiri þotum fyrir félagið en þeir verða staðsettir bæði á London Heathrow og í Malaga.

„Það er skortur á flugmönnum í allri Evrópu eins og er og það hefur haft áhrif á rekstur SAS Ireland. Okkur hefur ekki tekist að ráða nýja flugmenn en við erum í umsvifamiklu ráðningarferli núna og verðum við komin með fleiri flugmenn núna í september og í október“, segir í tilkynningu frá SAS.

Flugmenn hjá SAS í Skandinavíu höfðu nokkrum sinnum lýst því yfir að það hefði verið betri ákvörðun hjá félaginu að færa reynda flugmenn og flugstjóra yfir frá SAS til SAS Ireland.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga