flugfréttir
Hætta flugi til Teheran
Boeing 777 þota British Airways í flugtaki á flugvellinum í Los Angeles
British Airways hefur ákveðið að hætta að fljúga til Teheran en félagið bætist því í hóp annarra evrópskra flugfélaga sem hafa ákveðið að hætta flugi til Írans eftir að Bandaríkin riftu samkomulagi um afnám viðskiptaþvingana á Írani.
British Airways segir að áætlunarflugið til Teheran sé ekki hagkvæmt lengur rekstrarlega séð og mun félagið hætta
að fljúga til landsins í september en síðasta flugið verður flogið þann 22. september og síðasta flugið frá Teheran
til London verður flogið daginn eftir.
British Airways hafði í mörg ár flogið til Teheran en í október árið 2012 var fluginu hætt en fjórum árum síðar, í október
árið 2016, tók félagið þráðinn upp að nýju eftir að vestrænar þjóðir ákváðu að aflétta viðskiptabanni sem staðið
hafði yfir frá árinu 1979.
Air France hefur einnig ákveðið að hætta að fljúga frá París til Teheran þann 18. september en flugfélagið franska
hafði þegar dregið úr tíðni flugferða í ágúst úr þremur flugferðum í viku niður í eitt vikulegt flug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.