flugfréttir

Flugstjórinn í andlegu ójafnvægi og reykti í stjórnklefanum

- Tók vantraustsyfirlýsingu frá starfsmanni inn á sig og brast í grát

27. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:14

Flak vélarinnar á fótboltavellinum nálægt flugvellinum í Kathmandu

Talið er að flugstjóri Bombardier Q400 flugvélar, sem brotlenti í aðflugi að flugvellinum í Kathmandu í Nepal í vor, hafi verið á barmi taugaáfalls og í miklu andlegu ójafnvægi sem rekja má til ásakanna frá samstarfskonu hans sem hafði efast um hæfni hans sem flugmanns.

Flugslysið átti sér stað þann 12. mars er flugvél frá flugfélaginu US-Bangla Airlines var í aðflugi að Kathmandu en flugvélin brotlenti á fótboltavelli nálægt flugbrautinni með þeim afleiðingum að 51 af þeim 71 sem voru um borð létu lífið.

Drög að bráðabirgðarskýrslu slyssins var lekið í fjölmiðla um helgina og kemur þar fram að flugstjórinn, sem hét Abid Sultan, hafi verið í mjög annarlegu ástandi í stjórnklefanum skömmu yfir slysið og keðjureykti í stjórnklefanum til þess að róa sig.

Þá kemur fram að hann hafi nokkrum sinnum brostið í grát og talað stanslaust við aðstoðarflugmann sinn um samstarfskonu sína hjá flugfélaginu sem hafði ítrekað efast um hæfni hans sem flugmann og þjálfunarflugstjóra.

Flugstjórinn Abid Sultan og aðstoðarflugmaðurinn Prithula Rashid létust bæði í slysinu

Í skýrslunni kemur fram að ítrekaðar vantraustsyfirlýsingar hafi komið honum úr jafnvægi sem varð til þess að Abid fór að reykja í stjórnklefanum og var hann við það að fá taugaáfall skömmu fyrir lendingu.

Þá kemur fram í skýrslunni að andlegt ástand flugstjórans hafi truflað einbeitingu aðstoðarflugmannsins Prithula Rashid sem átti í erfiðleikum með að átta sig á stöðu vélarinnar í aðfluginu að flugbrautinni í Kathmandu.

Prithula Rashid var ráðin til US-Bangla Airlines árið 2016 en hún hafði aldrei áður lent á flugvellinum í Kathmandu í Nepal. Rashid lifði slysið af og var flutt á sjúkrahús en lést þremur vikum síðar af sárum sínum.

Flugvélin var af gerðinni Bombardier Dash 8 Q400

Í bráðabirgðarskýrslunni kemur fram að ekki var farið yfir tékklistann fyrir aðflugið og þá var hraðinn of mikill miðað við þá flughæð sem vélin var komin í og þá var gerð breyting á stefnu vélarinnar á stuttri lokastefnu.

Abid Sultan, sem var með yfir 15.000 flugtíma að baki, var eitt sinn herflugmaður í flughernum í Bangladesh áður en hann gekk til liðs við US-Bangla Airlines en þá var hann einnig flugkennari og þjálfunarflugstjóri hjá félaginu.

Flugslysið er talið eitt það mannskæðast í Nepal í 26 ár eða frá því að þota frá PIA (Pakistan International Airlines) fórst í landinu árið 1992.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga