flugfréttir
Garuda Indonesia mun hætta að fljúga til London
Boeing 777-300ER þota Garuda Indonesia á Heathrow-flugvellinum í London
Indónesíska flugfélagið Garuda Indonesia ætlar að hætta að fljúga til Heathrow-flugvallarins í London í haust.
Garuda Indonesia hefur flogið frá Jakarta til London Heathrow þrivar í viku með þotum af gerðinni Boeing 777-300ER
en félagið hefur nú hætt farmiðasölu eftir 28. október og verður síðasta flugið flogið þann daginn.
Þess í stað munu farþegar
geta bókað flug milli Jakarta og London með því að fljúga í gegnum Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam og skipta um vél og fljúga með KLM til London á sömu bókun.
Garuda Indonesia ætlar sér að nota Boeing 777-300ER þotuna í staðinn í áætlunarflugi til Haneda-flugvallarins í Tókýó
en ekki kemur fram hver ástæðan sé fyrir að félagið hafi ákveðið að hætta að fljúga til London.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.