flugfréttir
Norwegian selur sex þotur úr flotanum
Boeing 737-800 þota Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Norwegian hefur selt sex farþegaþotur úr flota sínum af gerðinni Boeing 737-800 í þeim tilgangi að greiða niður skuldir og auka lausafjárstöðu félagsins.
Norwegian ákvað að selja vélarnar í kjölfar afkomuskýrslu félagsins sem birt var í vor þar sem fram kom að einn
möguleiki til að bæta rekstur Norwegian sé að selja eldri þotur með möguleika á að leigja einhverjar til baka til að
auka eigið fé félagsins.
Norwegian seldi árið 2017 ellefu þotur sem félagið leigði til baka strax eftir kaupin en sala vélanna fer í gegnum
dótturfélagið Arctic Aviation Assets.
Fyrsta Boeing 737-800 þotan sem seld hefur verið verður afhent til nýs eiganda í nóvember og sú seinasta verður
afhent í ágúst á næsta ári.
„Upphæðin verður notuð til þess að greiða niður skuldir og einnig til þess að auka lausafjárstöðu félagsins“, segir í
tilkynningu frá Norwegian.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.