flugfréttir
A321LR til skoðunar hjá SAS
Airbus A321 þota SAS
SAS er nú að skoða þann möguleika að breyta pöntun sinni í Airbus A320neo yfir í langdrægu A321LR þotuna frá Airbus.
SAS hefur nú þegar tekið við 19 þotum af gerðinni Airbus A320neo af þeim þrjátíu sem pantaðar voru á sínum tíma
en félagið lagði einnig inn aðra pöntun í apríl fyrir 35 þotur til viðbótar af þessari gerð.
Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS, segir að félagið sé að ákveða hversu margar Airbus A321LR þotur myndu
henta fyrir félagið en A321 hefur yfir 900 kílómetra lengra flugdrægi framyfir Airbus A320neo.
„Ég hef trú á því að Airbus A321LR gæti verið mjög fín flugvél fyrir félagið sem myndi opna nýja markaði fyrir okkur. Þetta
er eitthvað sem við erum að skoða“, segir Gustafson.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.