flugfréttir

Primera Air mun fljúga frá Berlín til Norður-Ameríku

- Frá Berlin Tegel til New York, Boston og Toronto með Boeing 737 MAX

2. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:45

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 9 í litum Primera Air

Primera Air ætlar sér að fljúga yfir Atlantshafið frá Berlín til Norður-Ameríku næsta sumar og bætist borgin því í hóp annarra evrópskra borga á borð við London, París og Brussel sem félagið ætlar að tengja við áfangastaði í Norður-Ameríku með beinu flugi.

Primera Air mun fljúga frá Tegel-flugvellinum í Berlín til þriggja áfangastaða í Ameríku en fyrsta flugið verður flug til Kennedy-flugvallarins í New York þann
7. júní 2019, tveimur dögum síðar verður fyrsta flugið farið til Boston þann 9. júní og þann 10. júní mun félagið hefja flug frá Berlín til Toronto.

Primera Air mun nota Boeing 737 MAX 9 þotur í flugið frá Berlín til New York, Boston og Toronto en félagið fær þær fyrstu afhentar á næsta ári.

Flug Primera Air frá Berlín til New York verður flogið í samkeppni við Delta Air Lines sem flýgur sömu flugleið með Boeing 767-300ER breiðþotum auk United Airlines sem notar Boeing 767-400 þotur í sitt flug en ekkert flugfélag flýgur hinsvegar í dag milli Berlínar og Boston í beinu flugi.

Flugið til Toronto verður flogið í samkeppni við Air Canada sem flýgur til Berlínar með Boeing 767-300 breiðþotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga