flugfréttir

Tvö atvik er varða Air Canada til rannsóknar

3. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 09:19

Fyrra atvikið átti sér stað í San Francisco í júlí í fyrra og það síðara í síðasta mánuði

Sitthvort atvikið er varðar Air Canada er nú til rannsóknar bæði hjá flugmálayfirvöldum í Bandaríkjunum og í Kanada en fyrra atvikið átti sér stað í San Francisco er Airbus A320 þota var næstum búin að lenda á akbraut á flugvellinum en það síðara gerðist á flugvellinum í Toronto í síðasta mánuði.

Flugmálayfirvöld í Kanada rannsaka seinna atvikið þar sem farþegaþota frá Air Canada lenti þrátt fyrir að flugumferðarstjórar gáfu flugmönnum vélarinnar fyrirmæli um að fara í fráhvarfsflug.

Þota af gerðinni Airbus A321 var í stuttri lokastefnu að braut 06L á flugvellinum í Toronto eftir flug frá Calgary þann 18. ágúst þegar flugumferðarstjórar skipuðu flugmönnunum að hætta við lendingu og fara í „go around“ þar sem flugvél, sem hafði lenti skömmu áður, var ekki búin að yfirgefa brautina.

Flugmennirnir svöruðu ekki til baka og héldu aðfluginu áfram og lentu á brautinni. Engan sakaði og yfirgaf vélina brautina að lendingu lokinni.

Síðara atvikið átti sér stað þann 7. júlí árið 2017 þegar A320 þota stillti sér óvart upp í aðflugi að akbraut sem liggur samsíða braut 28R á San Francisco flugvelli en flugmennirnir fóru í fráflug í 60 fetum yfir jörðu og flaug vélin lágt yfir fjórar aðrar þotur sem voru í biðröð eftir því að komast í loftið á braut 28R.

Bæði atvikin í ágúst á þessu ári og í júlí í fyrra áttu sér stað í myrkri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga