flugfréttir
MC-21 þotan í fyrstu næturprófunum
MC-21-300 tilraunarþota í næturlendingum á Zhukovsky-flugvellinum í Moskvu
Flugprófanir fóru í fyrsta sinn fram að nóttu til með rússnesku MC-21 farþegaþotuna sem framleidd er af Irkut verksmiðjunum.
Tilraunarþotan tók nokkrar næturlendingar á Zhukovsky-flugvellinum í úthverfi Moskvu þar sem kerfi vélarinnar og siglingarbúnaður um borð var prófaður
auk þess sem tilraunir voru gerðar með ljós vélarinnar.
Í dag eru tvær MC-21-300 tilraunarþotur í flugprófunum en sú þriðja gengst undir prófanir á jörðu. Þá eru þrjár MC-21-300 þotur í lokasamsetningu til viðbótar sem einnig verða tilraunaþotur.
MC-21 stendur fyrir „Magistral Aircraft of the 21st Century“ en tvær útgáfur af þotunni munu koma á markað. Annars vegar MC-21-300 sem getur tekið allt að 163 farþega og hinsvegar minni útgáfan, MC-21-200, sem getur
tekið 132 farþega.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.