flugfréttir
Hvetja stjórnvöld á Indlandi til að huga að innviðum flugsins
Því er spáð að flugfarþegum á Indlandi eigi eftir að fjölda upp í 500 milljónir á ári
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa hvatt flugmálayfirvöld á Indlandi til þess að styrkja og efla innviði flugsins í landinu ef landið ætlar sér að koma til móts við þann gríðarlega vöxt sem spáð er að eigi eftir að eiga sér stað í flugsamgöngum í landinu á næstu 20 árum.
Alexandre de Juniac, framkvæmdarstjóri IATA, segir að þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir flugsætum á næstu árum þá
sé róðurinn erfiður fyrir indversk flugfélög sem mörg hver eru rekin með tapi.
„Það þarf að þróa innviði og bæta stjórnsýslu meðal yfirvalda sem hamlar vexti í flugsamgöngum“, segir Alexandre
sem tekur fram að einnig verði að bæta Chhatrapati Shivaji flugvöllinn í Mumbai þar sem ekki er séð fram á að nýi alþjóðaflugvöllurinn í borginni verði tilbúinn fyrir
árið 2019.
Alexandre segir að IATA sé reiðubúið að aðstoða stjórnvöld á Indlandi við áætlunargerð fyrir flugsamgöngur fyrir næstu árin en spáð er að farþegafjöldi í fluginu á Indlandi eigi
eftir að þrefaldast upp í 500 milljón farþega fyrir árið 2037.
„Það er ljóst að eftirspurnin er til staðar á Indlandi til þess að bæta innviðina en engu hefur samt sem áður verið
komið í verk. Ef ekkert verður að gerð mun þetta skapa flöskuhálsi í vextinum á næstu árum“, segir Alexandre.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.