flugfréttir
Kansai-flugvöllur á floti eftir fellibyl
Fellibylurinn Jebi gekk yfir Japan í gær
Loka þurfti Kansai-flugvellinum í japönsku borginni Osaka eftir að sjór flæddi yfir flugvöllinn í kjölfar fellibylsins Jebi sem gekk yfir Japans í dag.
Kansai-flugvöllur stendur á manngerðri eyju sem búinn var til með landfyllingu árið 1994 en myndum af flugvellinum
á floti hefur verið dreift víða í dag á samfélagsmiðlum.
Eins og sjá má þá er stór hluti flugvallarins ásamt flugbrautum og akbrautum undir vatni og hefur ekki verið hægt að nota
flugvöllinn í dag auk þess sem ekki er hægt að aka til og frá flugvellinum á meginlands Japans.
Fram kemur að 158 flugferðum hafi verið aflýst í dag og er ekki vitað hvenær flugvöllurinn verður opnaður á ný en á mörgum
stöðum mælist vatnsyfirborðið um 50 sentimetra á flugvallarsvæðinu.
Meðal flugfélaga sem hafa aflýst flugferðum um Kansai-flugvöllinn í dag eru Japan Airlines, ANA (All Nippon Airways) og
Peach.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.