flugfréttir
Fyrsta myndbandið af Boeing 777X í samsetningu
Fyrsta Boeing 777X þotan mun fljúga júmfrúarflugið árið 2019
Boeing hefur birt myndband sem sýnir tvær fyrstu Boeing 777X þoturnar sem er komin langt á leið í gegnum samsetningu í verksmiðjunum í Everett.
Boeing birti myndbandið í gær á Fésbókarsíðu Boeing en fyrstu þoturnar tvær eru af gerðinni Boeing 777-9 sem er arftaki
Boeing 777-300ER sem í dag hefur selst í 789 eintökum frá því hún kom á markað árið 2004.
Önnur þotan verður eingöngu notuð í prófanir á jörðu niðri þar sem álag og þol verður prófað á búknum og á vængjunum en hin þotan verður notuð við flugprófanir.
„Eintakið, sem verður notað í tilraunum á jörðu niðri, mun gefa okkur tækifæri á því að sannreyna allt álag á búkinn og á vængina
til að ganga úr skugga um að styrkur þotunnar sé í samræmi við hönnun hennar“, segir Doreen Bingo, yfirmaður yfir prófunardeild Boeing.
Önnur þotan, sem er nú í samsetningu, verður notuð við prófanir á jörðu niðri á meðan hin verður notuð í flugprófanir
Boeing segir að búið sé að festa allar einingarnar saman sem mynda skrokk þotunnar en ekki kemur fram hvenær fyrstu prófanir
hefjast.
Fyrsta Boeing 777X þotan mun fljúga sitt fyrsta flug árið 2019 en áætlað er að ANA (All Nippon Airways) fái fyrsta eintakið árið 2020.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.