flugfréttir
Icelandair Group ræður ráðgjafa vegna ráðningar forstjóra
- Ráðgjafarfyrirtækin Spencer Stuart og Capacent sjá um ráðningarferli
Boeing 757 þota Icelandair á Keflavíkurflugvelli
Stjórn Icelandair Group hefur ráðið alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Spencer Stuart annars vegar og Capacent á Íslandi hins vegar til þess að hafa umsjón með ráðningarferli á nýjum forstjóra félagsins.
„Það er mikilvægt að vel takist til við ráðningu forstjóra félagsins. Staða þess er sterk en jafnframt krefjandi og við teljum það mjög spennandi verkefni að taka við stjórnartaumum félagsins á þessum tímapunkti“, segir Úlfar Steindórsson, formaður stjórnar Icelandair Group.
Með því að nýta okkur sérþekkingu og tengslanet erlendra og innlendra aðila vonumst við til þess að geta valið úr hópi framúrskarandi einstaklinga til þess að leiða félagið til framtíðar.“
Spencer Stuart hefur höfuðstöðvar sínar í Chicago
Spencer Stuart var stofnað árið 1956 og er meðal leiðandi ráðgjafarfyrirtækja í heiminum á sviði stjórnendaráðninga. Fyrirtækið er með 56 skrifstofur í 30 löndum. Thierry Lindenau, yfirmaður stjórnendaráðninga á sviði flugrekstrar hjá Spencer Stuart, mun leiða vinnu fyrirtækisins við ráðningu forstjóra Icelandair Group.
Capacent á Íslandi er hluti af Capacent Holding AB í Svíþjóð sem var upphaflega stofnað árið 1983. Hjá Capacent á Íslandi starfa um 50 ráðgjafar og mun Hilmar Hjaltason, ráðgjafi og meðeigandi hjá Capacent leiða verkefnið fyrir hönd Capacent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.