flugfréttir
Fleiri A320neo þotur afhentar heldur en A320
Airbus A321 þota Airbus
Airbus er byrjað að afhenda fleiri Airbus A320neo þotur og er fjöldi nýrra véla, sem viðskiptavinir fá í hendurnar, komin yfir þann fjölda sem afhentar eru af hefðbundnu útgáfunni, Airbus A320ceo.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Airbus sem hefur tekið saman tölfræði fyrir árið 2018.
Viðsnúningurinn átti sér stað þann 28. júlí í sumar þegar fjöldi afhentra A320neo þotna fór yfir þær A320 þotur sem afhentar hafa verið frá áramótum.
Á fyrstu átta mánuðum ársins voru 159 Airbus A320/A321 þotur afhentar á meðan fjöldi afhentra A320neo og A321neo þotna taldi
184 þotur.
Afhentar voru 58 eintök af Airbus A321neo en 127 vélar af gerðinni Airbus A320neo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.