flugfréttir
Icelandair til Evrópu fyrir hádegi og Ameríku að kvöldi til
- Nýr tengibanki í leiðakerfi Icelandair
Boeing 757 þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli
Icelandair hefur hafið sölu á flugi til fjölmargra áfangastaða á brottfarartímum sem ekki hafa áður verið í boði hjá félaginu.
Um er að ræða breytingu á leiðakerfi félagsins sem felst í því að auk núverandi tengitíma á Keflavíkurflugvelli, snemma morguns og síðdegis, verður frá og með maí 2019 boðið upp á flug til Evrópuborga um kl. 10:30 að morgni og til Norður-Ameríkuborga um kl. 20.00 að kvöldi.
Tilgangur breytinganna er að skapa félaginu ný tækifæri til vaxtar, bæta þjónustu við farþega og auka sveigjanleika. Ekki er svigrúm til að bæta við flugi eða farþegum á Keflavíkurflugvelli á háannatímanum að morgni og síðdegis, en á nýju brottfarartímunum er nægt rými í flugstöðinni, við brottfararhlið og á flughlöðum. Að auki verða til nýir tengimöguleikar fyrir farþega á leið yfir Atlantshafið milli þessara tveggja tengibanka.
„Þessi breyting, sem verið hefur í undirbúningi um hríð, er nýr áfangi í framtíðarvexti félagsins“, segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. „Við erum að þróa tengimöguleika okkar núverandi leiðakerfis en auk þess að koma inn á markaðinn með nýja þjónustu. Fyrir Íslendinga getur t.d. verið þægilegt að þurfa ekki að vakna snemma á morgnana fyrir Evrópuflug, og einnig að fljúga vestur um haf að kvöldi til. Við erum jafnframt að horfa til þess að laga það ójafnvægi sem var í leiðakerfinu á árinu 2018.“
„Látrabjarg“, Boeing 737 MAX þota Icelandair
Breytingin tengist einnig endurnýjun flugflota Icelandair, en félagið tekur á móti sex nýjum Boeing MAX þotum snemma á næsta ári til viðbótar við þær þrjár sem komu á þessu ári. „Nýr floti styður við þessa breytingu á leiðakerfinu. Nýtingin á flugvélunum mun aukast en um leið léttir þetta álagið á Keflavíkurflugvelli og þjónusta við farþega verður betri.
Skapar ný markaðstækifæri og eykur tengimöguleika fjarlægari borga í Evrópu
Endanleg flugáætlun fyrir árið 2019 liggur ekki fyrir, enn er verið að greina hvort nýir áfangastaðir bætast við og hvort hætt verði flugi til einhverra af núverandi áfangastöðum. Jafnframt erum við að skoða tíðni til núverandi áfangastaða og hafa því ekki verið teknar ákvarðanir varðandi vöxt á næsta ári.“, segir Bogi Nils.
Endanleg flugáætlun félagsins verður birt þegar hún liggur fyrir. Nýi tengibankinn verður nokkru minni en aðaltengibankinn. Boðið verður upp á flug til Evrópuborga um klukkan 10:30 og flug frá sömu borgum munu lenda á Keflavíkurflugvelli um kl 18:30.
Þær borgir í Evrópu sem búið er að ákveða að fari inn í þennan tengibanka eru Frankfurt, München, Amsterdam, Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Ósló, París, Brussel, Berlín, Hamborg og Zürich. Einnig verður áfram flogið til þessara borga á sama tíma og undanfarin ár. Flogið verður til Norður-Ameríkustaða um kl. 20:00 og flug frá þeim borgum muni lenda á Íslandi um kl. 09:30 að morgni. Borgirnar eru Boston, New York, Washington, Chicago, Minneapolis og Toronto.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.