flugfréttir

Boeing kallar til baka um 600 fyrrverandi starfsmenn

- Endurráða starfsmenn sem var sagt upp til að laga framleiðsluna á 737 MAX

10. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 23:21

Frá verksmiðjum Boeing í Renton þar sem Boeing 737 MAX er smíðuð

Boeing hefur ákveðið að endurráða fyrrverandi starfsmenn til Boeing-verksmiðjanna í Renton sem sagt var upp störfum í fyrrahaust.

Þetta er gert í þeim tilgangi að koma framleiðslunni á Boeing 737 MAX þotunum aftur á réttan kjöl en skortur á hreyflum frá CFM International og nýjum skrokkum frá fyrirtækinu Spirit AeroSystems hefur orðið til þess að fullsmíðaðar 737 MAX þotur án hreyfla hafa hrannast upp á athafnasvæði Boeing.

Aldrei áður hefur Boeing afhent eins fáar Boeing 737 þotur líkt og í ágúst og hefur Boeing endurráðið um 600 starfsmenn sem flestir höfðu sagt upp að ósk Boeing sem bauð þeim starfslokagreiðslu ef þeir myndu segja upp starfi sínu sem var hluti af niðurskurðaráætlun framleiðandans.

Í síðustu viku voru komnar yfir 50 Boeing 737 MAX þotur sem höfðu safnast upp við verksmiðjurnar í Renton en vandamálið byrjaði sl. vor þegar óafhentar 737 MAX þotum var lagt á svæðinu vegna skorts á hreyflum.

„Við vinnum náið með Spirit AeroSystems og CFM International og þeir eru að ná að laga vandamálið en á meðan munum við halda áfram að smíða 52 þotur á mánuði“, segir Paul Bergman, talsmaður Boeing en hreyflaframleiðandinn sér fram á að seinkanirnar verði yfirstaðnar fyrir lok ársins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga