flugfréttir
Bílaeltingaleikur endaði inn á flugvellinum í Lyon
- Ók inn á flugvöllinn með lögregluna á hælunum
Bílaeltingarleikurinn endaði á flugbraut á flugvellinum í Lyon í Frakklandi
Flugumferð raskaðist í gær á flugvellinum í Lyon í Frakklandi eftir að bílaeltingaleikur milli lögreglu og ökuníðings endaði inn á flugvallarsvæðinu.
Lögregla fékk tilkynningu um Mercedes Benz bifreið sem var ekið á ofsahraða á móti umferð á hraðbraut í átt að miðborg Lyon.
Fram kemur að ökumaðurinn hafi reynt að aka niður fólk á götum í miðborginni en mikil mildi þykir að engin vegfarandi hafi
orðið fyrir bílnum.
Lögreglan elti bílinn uppi en ökumaðurinn tók stefnuna því næst út á flugvöllinn í Lyon sem er fjórði stærsti flugvöllurinn í Frakklandi.
Bílnum var ekið í gegnum glerhurð á Terminal 1 flugstöðinni og því næst út á flughlaðið með nokkra lögreglubíla á hælunum auk
sérsveitar en ökuferðin endaði er bíllinn ók á ójöfnu á graslendi milli flugbrautanna.
Ökumaðurinn reyndi að flýja á hlaupum en var yfirbugaður af fjölmennu lögregluliði.
Aflýsa þurfti um 80 flugferðum um Lyon-flugvöllinn vegna atviksins og þá þurfti að beina flugvélum til Genfar í Sviss vegna atviksins
þar sem bíllinn stöðvaðist á flugbrautinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.