flugfréttir

Flugmenn SpiceJet fá ekki lengur heitan mat

11. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:44

Flugvélamatur hjá flugstjóra um borð í Airbus-þotu

Indverska flugfélagið SpiceJet hefur ákveðið að hætta að bjóða flugmönnum sínum upp á heitan mat í stjórnklefanum og munu þeir þess í stað fá samlokur og kartöfluflögur.

Ástæðan er sú að í ljós hefur komið að flugmenn félagsins eru ekki duglegir að taka til matar síns er kemur að heitum mat en sl. tvo mánuði hefur 90% af mat flugmanna endað í ruslinu og verið kastar að flugferð lokinni.

SpiceJet hefur tilkynnt flugmönnum sínum að ef þeir vilja heitan mat þá geta þeir keypt hann hjá flugfreyjunum aftur í vél sem hafa ávallt aukamáltíðir um borð.

Einn flugstjóri, kapteinn Ranganathan, hefur fordæmt þessa ákvörðun en hann bendir á að ef báðir flugmennirnir kaupi mat, sem er ætlaður farþegum, þá muni þeir borða sömu máltíðina sem stangast á við reglugerðir félagsins.

Margir flugmenn hafa sent inn kvörtun og lýst yfir óánægju sinni yfir því að fá ekki lengur heitan mat

Flest flugfélög fara fram á að flugmenn borði sitthvora máltíðina er þeir eru að fljúga af öryggisástæðum ef annar þeirra fær matareitrun.

Þá segir Ranganathan að ef flugmenn taki með sér mat að heiman í nesti þá geti hann hæglega orðið 10 klukkutíma gamall sem er ekki heldur gott.

Margir flugmenn hjá SpiceJet hafa sent inn kvörtun og krefjast þess að þeim verði boðið upp á heitan mat áfram.

Hinsvegar þá verða þeir flugmenn, sem fljúga Bombardier Dash 8 flugvélum félagsins, að sætta sig við kaldan mat þar sem ekki er neinn ofn um borð til að hita upp mat.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga