flugfréttir

Boeing forðar nýjum þotum frá Suður-Karólínu vegna fellibyls

- Talið að Florence muni ganga yfir verksmiðjur Boeing í Charleston

12. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 21:28

Gerð er ráð fyrir að Florence komi upp að ströndum Suður-Karólínu á morgun

Boeing undirbýr sig fyrir komu fellibylsins Florence sem nálgast nú austurströnd Bandaríkjanna en Boeing hefur verksmiðjur í Charleston í Suður-Karólínu þar sem Boeing 787-9 og Boeing 787-10 eru framleiddar.

Gert er ráð fyrir að Florence komi upp að ströndum Suður-Karólínu á morgun og er því spáð að fellibylurinn fari beint yfir verksmiðjusvæði Boeing.

Til að koma í veg fyrir tjón á nýjum farþegaþotum, sem ekki eru tilbúnar til afhendingar strax, þá var sjö Boeing 787-9 og Boeing 787-10 þotum flogið í gær þvert yfir Bandaríkin til Seattle þar sem þær verða geymdar á meðan á Paine Field flugvellinum við verksmiðjur Boeing í Everett af öryggisástæðum ef verksmiðjan í Charleston verður fyrir tjóni.

Athafnasvæði Boeing í Charleston í Suður-Karólínu

Þoturnar sem voru ferjaðar yfir til Seattle verða á næstunni afhentar til flugfélaga á borð við Hainan Airlines, Etihad Airways, Shanghai Airlines og United Airlines.

Aðrar Dreamliner-þotur, sem eru ekki komnar það langt í samsetningarferlinu að hægt er að fljúga þeim, verða inni í samsetningarsalnum og þar á meðal ein Boeing 787-9 þota sem mun afhendast á næstunni til Air Tahiti Nui sem er fullkláruð en hefur ekki flogið sitt fyrsta flug.

Ein af þeim Boeing 787 þotum, sem flogið var yfir Bandaríkin til Seattle, var þota sem afhent verður á næstunni til Shangai Airlines

Dyrnar á Boeing-verksmiðjunum í Charleston eru mjög sterkar og eru þær hannaðar til þess að þola vindstyrk frá fellibyljum og er gert ráð fyrir að Florance muni ekki ná að valda miklu tjóni á verksmiðjunni sjálfri.

Verksmiðjunum í Charleston var lokað í gær og 6.000 starfsmönnum gefið frí til þess að undirbúa sig fyrir komu Florence og mun starfsemin hefjast að nýju þegar metið verður svo að öruggt sé.

Dreamliner-þoturnar sjö á Flightradar24.com í gær







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga