flugfréttir
Air Peace í Nígeríu pantar tíu Boeing 737 MAX þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Air Peace
Nígeríska flugfélagið Air Peace hefur staðfest pöntun í tíu Boeing 737 MAX þotur að andvirði 123 milljarða króna.
Air Peace, sem var stofnað árið 2013, er einkarekið flugfélag sem hefur höfuðstöðvar
sínar í borginni Ikeja í Nígeríu.
Flugfélagið verður það fyrsta í vesturhluta Afríku sem fær Boeing 737 MAX þotuna
afhenta en félagið hefur í dag 20 flugvélar í flota sínum af gerðinni Boeing 737, Boeing 777,
Dornier 328 og Embraer ERJ145.
Talið er að Boeing 737 MAX þoturnar tíu muni skapa um 3.000 ný störf innan félagsins
en Air Peace stefnir á að hefja á næstunni sitt fyrsta langflug sem verður flogið með þeirri
einu Boeing 777-300ER þotu sem félagið hefur fengið afhenta.
Síðastliðin ár hafa nokkrar tilraunir verið gerðar til þess að koma á fót öruggu flugfélagi
í Nígeríu og hafa bæði Boeing og Airbus skaffað flugvélar til flugfélaga í landinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.