flugfréttir

Stafsetningarvilla í málun á Boeing 777 þotu hjá Cathay

- F-ið gleymdist og úr varð „Cathay Paciic“

19. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:50

Boeing 777-300ER þotan skömmu eftir að hún kom út úr málningu í Hong Kong

Að gera stafsetningarvillur kemur fyrir besta fólk og einnig stærstu fyrirtæki og þar á meðal flugfélög - En að mála nafn flugfélags á heila þotu og gleyma einum staf er sennilega eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi.

Cathay Pacific lét endurmála eina af Boeing 777-300ER þotunum sínum á dögunum en alvarlegt klúður átti sér stað í málningarvinnunni þar sem einn staf vantaði í nafn félagsins.

Snemma í morgun vakti klúðrið athygli margra á Chek Lap Kok flugvellinum þar sem bókstafinn „F“ vantaði á nafn flugfélagsins á skrokknum og stóð því á henni „Cathay Paciic“

Cathay Pacific hafði sem betur fer húmor fyrir mistökunum

Myndir af stafsetningarvillunni í nafninu breiddust út eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum og var fyrirtækið HAECO (Hong Kong Aircraft Engineering Company Limited) ekki lengi að bregðast við og var starfsmaður sendur til þess að laga nafnið og bæta „F-inu“ við.

Flugfélagið sjálft sá samt spaugilegu hliðina á þessu og póstaði félagið myndir af stafsetningavillunni á Twitter-síðu Cathay Pacific þar sem stóð „Úps, þessi sérstaki búningur mun ekki endast lengi… Hún fer aftur í málningu“.

Ekki er vitað hvað orsakaði þessi mistök en notuð eru sérstök mót til þess að sprauta stafi félagsins á skrokkinn við málningu og virðist sem svo að einn stafur hafi hreinlega gleymst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga