flugfréttir
Málverkasýning Tolla á Egilsstaðaflugvelli
- Fleiri málverkasýningar framundan á öðrum innanlandsflugvöllum
23 ný olíumálverk eftir Tolla verða til sýnis á Egilsstaðaflugvelli
Föstudaginn 21. september næstkomandi kl. 16 verður opnuð sýning á 23 nýjum olíumálverkum eftir Tolla í flugstöðinni á Egilsstöðum en sýningin er í boði Isavia, rekstraraðila flugvallarins, og er sýningin sú fyrsta af nokkrum á verkum Tolla sem settar verða upp á innanlandsflugvöllum á Íslandi á komandi mánuðum.
„Á síðasta ári kom ég að máli við Isavia með þá hugmynd að nýta húsakostinn á flugstöðum landsins til sýningarhalds þar sem þarna væri gott veggjaplás, hátt til lofts og vítt til veggja,“ segir Tolli.
„Lýsing í flugstöðunum er iðulega góð og mikið rennsli af fólki í gegnum húsinn. Var tekið vel í þessa hugmynd af forráðamönnum Isavia og þegar ráðist í að framkvæma þetta.“, segir
Tolli sem tekur fram að sýningar hans á flugvöllunum verði vonandi bara þær fyrstu af mörgum.
Áformað er að sýna verk Tolla á fleiri innanlandsflugvöllum
Olíuverkin sem sýnd verða á Egilsstöðum eru öll ný af nálinni, bæði stór og smá eftir því sem húsrúm leyfir og verða öll verkin til sölu.
Málverkasýningin verður ekki eini viðburðurinn sem verður haldinn á Egilsstaðaflugvelli því daginn eftir, Laugardaginn 22. september kl. 11, býður Hjörvar Steinn Grétarsson skákmeistari til fjölteflis í flugstöðinni en þeir sem ná jafntefli eða vinna fá vinninga auk þess sem þrenn aukaverðlaun verða dregin út.
Í fréttatilkynningu frá Isavia kemur fram að áhugasamir geta skráð þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið sverrirg57@gmail.com í síðasta lagi föstudagskvöldið 21. september en
einnig verður hægt að skrá sig á staðnum kl. 10.45 ef enn verða laus sæti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.