flugfréttir
Flugmaður slasaðist við að handsnúa Cirrus SR22 í gang
- Rauk af stað og klessti á flugskýli
Atvikið átti sér stað á flugvellinum í Mason City í Iowa þann 8. september
Flugmaður slasaðist í óhappi sem átt sér stað í Iowa í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði er eins hreyfils flugvél af gerðinni Cirrus SR-22 klessti á flugskýli eftir að tilraun flugmannsins til að handsnúa mótornum í gang fór úr böndunum.
Atvikið, sem náðist á öryggismyndavél, átti sér stað þann 8. september sl. á flugvellinum í borginni Mason City í Iowa
en flugmaðurinn, sem ætlaði í flugferð með einum farþega, hugðist koma mótornum í gang með því að snúa loftskrúfunni.
Ekki vildi betur til en að mótorinn rauk í gang og þykir sennilega að inngjöfin hafi verið í botni með kveikt á kveikjum þar sem
vélin rauk af stað eftir flugvallarsvæðinu.
Á myndbandinu má bæði sjá hvar flugmaðurinn reynir að stökkva inn í flugvélina á ferð til að draga aflið af á sama tíma
og farþegi hans kastar sér úr vélinni á ferð.
Myndband:
Í annarri öryggismyndavél má sjá annað sjónarhorn sem sýnir hvar flugvélin endar för sína á flugskýli og munaði litlu að hún
hefði rekist á Porsche-bifreið sem stendur kyrrstæð við skýlið.
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) rannsaka nú atvikið en á ljósmyndum, sem teknar voru innan í flugvélinni, má sjá
blóð eftir að sár flugmannsins er hann fékk skrúfuna í sig þegar mótorinn fór í gang.
Annar flugmaður sem var á svæðinu segir að hann hafi farið að flugvélinni og lokað fyrir eldsneytiskranann og slökkti á rafmagni
og kveikjum.
Stjórnklefinn á flugvélinni
Í skýrslu frá þriðja flugmanninum sem var á svæðinu kemur fram að flugmaðurinn Cirrus-vélarinnar hafi komið yfir í skýlið hans og spurt hann hvort hann
hefði rafgeymi til að gefa sér start þar sem of lítið rafmagn var á vélinni til að starta mótornum. Í framhaldi af því reyndi hann að
snúa mótornum í gang með fyrrgreindum afleiðingum.
Flugmaðurinn, sem er atvinnuflugmaður með reynslu á Cirrus SR22, fór á sjúkrahús til að láta gera að meiðslum sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.