flugfréttir

Fyrsta Airbus A350-900ULR afhent til Singapore Airlines

- Munu hefja aftur lengsta áætlunarflug heims

22. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:04

Fyrsta Airbus A350-900ULR þotan í Toulouse á leið í afhendingarflugið

Airbus hefur afhent fyrsta eintakið af Airbus A350-900ULR sem er langdrægasta farþegaþota heims en það er Singapore Airlines sem tekur við fyrstu þotunni af þessari gerð.

Þotan var afhent frá Toulouse og lagði hún af stað í afhendingarflugið til Singapore klukkan 18:10 sl. föstudagskvöld (22. september).

Með þotunni mun Singapore Airlines taka upp þráðinn að nýju með lengsta áætlunarflug sögunnar frá Singapore til New York en félagið hætti því flugi fyrir fimm árum síðan.

Flugleiðin milli Singapore og Newark komst í Heimsmetabók Guinness sem lengsta áætlunarflug í heimi en það flug lagðist af árið 2013 þar sem Singapore Airlines þótti hin fjögurra hreyfla A340-500 breiðþota vera mjög óhagkvæm fyrir hið langa flug.

Þotan, sem ber skráninguna 9V-SGA, er fyrsta þotan af þeim sjö sem Singapore Airlines hefur pantað og mun félagið einnig nota vélarnar í flugi til Los Angeles og San Francisco.

Airbus A350-900ULR hefur flugþol upp á 9.700 mílur sem samsvarar 17.965 kílómetrum og hirðir þotan því titilinn „langdrægasta farþegaþota heims“ af Boeing 777-200LR sem hingað til hefur verið sú þota sem hefur flogið lengstu vegalengd allra farþegaflugvéla.

Fyrsta flug Singapore Airlines til New York hefst þann 11. október og verður flugtíminn rúmar 19 klukkustundir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga