flugfréttir

Emirates hættir við Mexíkó

- Fá ekki leyfi frá yfirvöldum fyrir daglegu flugi til Mexíkóborgar

24. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:48

Airbus A380 risaþota Emirates á flugvellinum í El Prat flugvellinum í Barcelona

Emirates hefur ákveðið að hætta við fyrirhugað áætlunarflug til Mexíkó en félagið ætlaði sér að fljúga daglega til Mexíkóborgar frá Dubai með viðkomu í Barcelona.

Ástæðan er sú að yfirvöld í Mexíkó tilkynntu Emirates að félagið gæti aðeins flogið þrisvar í viku til landsins en ekki daglega eins og félagið hafði hugsað sér.

Emirates segir að það sé ekki arðbært fyrir félagið að fljúga til Mexíkó einungis þrisvar í viku sökum þess hversu mikil fjárfesting það er að fljúga til Mexíkó frá Dubai og standi það ekki undir kostnaði að fljúga aðeins þrisvar í viku.

Þá hafa stjórnvöld í Mexíkó ekki verið hrifin af því að fá Emirates til Mexíkó þar sem ríkisflugfélagið AeroMexico er í sama bandalagi og Delta Air Lines sem hefur ásamt United Airlines og American Airlines sakað Emirates um að þiggja ólögmæta styrki frá stjórnvöldum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Stjórnvöld í Mexíkó höfðu í vor meinað Emirates að fljúga til landins með viðkomu í Barcelona og nýta sér með því loftferðasamning sem kveður á um hinn svokallaðan „fimmta rétt“ og hefði áætlunarflug Emirates veitt Aeroméxico stranga og erfiða samkeppni á flugleiðinni milli Mexíkóborgar og Barcelona.

Emirates segist vonast til þess að félagið geti á næstunni hafið flug til Mexíkó þegar aðstæður verða betri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga