flugfréttir
Airbus A320 fór í flugtak í ranga átt með of stutta braut
- Báðir flugmennirnir reknir á meðan rannsókn stendur yfir
Airbus A320 þota Air Arabia á flugvellinum í Sharjah
Tveir flugmenn hjá flugfélaginu Air Arabia hafa verið leystir frá störfum tímabundið vegna atviks þar sem Airbus A320 þota, sem þeir flugu, fór í loftið undan vindi í ranga átt á flugvellinum í borginni Sharjah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og það með of stutta flugbraut.
Atvikið átti sér stað sl. þriðjudag (18. september) og var þotan á leið til borgarinnar Salalah í Oman en flugvélin ók
inn á braut 12/30 gegnum „taxiway“ B14 og átti hún að aka braut 30 að enda og snúa þar við til að fara í loftið.
Í stað þess að aka brautina þá fór þotan strax í loftið á akbrautarmótunum B14 í sömu stefnu
og þota sem hefði notað alla 12 brautina og það með brautarvegalengd upp á aðeins 1.020 metra sem er um þriðjungur brautarinnar sem er 3.010 metar á lengd.
Rauða örin sýnir hvað flugvélin fór inn á brautina og í hvaða átt hún fór í flugtak
Þotan náði að takast á loft áður en hún kom að öryggissvæðinu við enda brautarinnar og náði hún einnig að sleppa við
hindranir og hélt klifrinu áfram og lenti í Salalah í Oman á tilsettum tíma.
Daginn eftir fyrirskipaði Air Arabia flugmönnum sínum að öll flugtök frá akbrautarmótum væru bönnuð í kjölfar atviksins
og þá hefur félagið brýnt fyrir flugumferðarstjórum að tilgreina betur þá leið sem flugmenn eiga að aka eftir á leið í flugtak
á flugvellinum í Sharjah.
Fram kemur að flugmennirnir hefðu átt að vita betur þar sem um heimavöll flugfélagsins var að ræða og einnig
hefðu þeir átta að gefa því gaum að þeir höfðu mjög stutta brautarlengd fyrir framan sig til að nota í flugtak og að kompásstefna vélarinnar væri í þveröfuga átt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.