flugfréttir
Gæti tekið heilt ár í að koma framleiðslu á A320neo í rétt horf
Airbus A320neo þota LATAM
Talið er að það gæti tekið allt að eitt ár fyrir Airbus að koma framleiðslunni á Airbus A320neo þotunum aftur á rétt skrið og gera afhendingarnar stöðugri vegna seinkana.
Airbus segir að þrátt fyrir vandamál bæði hjá Pratt & Whitney og CFM International þá sé stefnt á að afhenda um 800
þotur eftir 2018 en það veltur þó allt á afhendingum á nýjum hreyflum frá hreyflaframleiðendum.
Chris Buckley, varaframkvæmdarstjóri Airbus fyrir Evrópu, Afríku og Asíumarkað, sagði í nýlegu viðtali að það gæti
tekið ár að koma afhendingum í rétt horf á Airbus A320neo þotunni en þau ummæli urðu til þess að hlutabréf
í Airbus féllu um 2.1 prósent.
Airbus ætlaði sér að afhenda fleiri A320neo þotur á þessu ári áður en þriggja mánaða töf varð á hreyflum frá
CFM International sem varð til þess að yfir 100 eintök af þotunum hrönnuðust upp á verksmiðjusvæði Airbus í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.