flugfréttir

Skert athygli og þreyta orsök atviks í San Francisco í fyrra

- Var 20 fetum frá því að rekast á þotur á „taxiway“ í aðflugi

25. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 23:00

Talið er að 10 til 20 fet hafi skilið að Airbus A320 þotu Air Canada og stélin á vélunum sem biðu á akbrautinni í San Francisco

Skert athygli og þreyta er talin meginorsök alvarlegs atviks sem átti sér stað í júlí í fyrra er farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá Air Canada var næstum búin að lenda á akbraut í aðflugi að flugvellinum í San Francisco.

Þetta kemur meðal annars fram í lokaskýrslu frá Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) varðandi atvikið sem var kynnt á blaðamananfundi í gær en þotan var að lenda í San Francisco eftir áætlunarflug frá Toronto þann 7. júlí 2017.

Fram kemur að flugmennirnir hafi einnig gleymt að stilla blindaðflugskerfi vélarinnar (ILS) við þar til gerða tíðni í aðfluginu en flugmennirnir fóru í fráhvarfsflug á síðustu stundu þegar þeir gerðu sér grein fyrir að þeir voru að koma inn til lendingar á akbraut þar sem a.m.k. fjórar þotur biðu í röð eftir að fá að komast í loftið.

Rannsakendur flugslysa, sem unnu að skýrslunni segja að flugvélin hafi verið 10 til 20 fetum frá flugvélunum sem biðu eftir flugtaksheimild á akbrautinni sem liggur samsíða flugbraut 28R sem var í notkun.

Í upplýsingum til flugmanna (NOTAM) kom fram að önnur flugbraut, 28L, sem liggur samsíða 28R, hafi verið lokuð en Sathya Silva, rannsóknaraðili á sviði mannlegrar getu hjá NTSB, gagnrýnir NOTAM upplýsingarnar harðlega og segir þær illskiljanlegar og erfitt fyrir flugmenn að átta sig á þeim sem getur skapað vandræði.

Þotan fór í fráhvarfsflug og lenti skömmu síðar í San Francisco

„NOTAM kerfið er mjög illa skipulagt og í rugli. Það er skrifað á tungumáli sem aðeins forritari getur skilið og er þetta hreinlega bara haugur af rusli sem enginn flugmaður nennir að lesa sig til um“, segir Silva.

Flugmennirnir áttu að stilla kerfi vélarinnar að blindaðflugskerfinu samkvæmt reglugerðum Air Canada á sama tíma og þeir áttu að setja upplýsingar inn í flugtölvu vélarinnar á meðan þeir voru í sjónaðflugi að brautinni.

Flugmennirnir gerðu það hinsvegar ekki og flugu vélinni handstýrt í aðfluginu og töldu sig vera í beinni línu að flugbrautinni þegar þeir voru í raun og veru að stefna á akbrautina.

Flugstjórinn hafði ekki hvílst í 19 klukkustundir

Silva bendir á að þreyta hafi spilað stóran hlut í atvikinu þar sem litlu munaði að lá við stórslysi en flugstjórinn hafði ekki hvílst í 19 klukkustundir á meðan flugmaðurinn hafði verið vakandi í 12 tíma.

Atvikið átti sér stað klukkan 23:16 að staðartíma og var líkamsklukka flugmannanna stillt á austurstrandartíma sem var þá klukkan 3:00 að nóttu.

Silva bendir á að samkvæmt vaktartíma sem kemur fram í bandarískum reglugerðum þá hafi flugstjórinn ekki átt að fljúga þetta tiltekna flug þrátt fyrir að kanadískar reglugerðir í fluginu kveða á um annað.

Flugmálayfirvöld í Kanada hafa lengi sagt að til standi að aðlaga sig að bandarískum reglum um hvíldartíma áhafna í Bandaríkjunum.

Í lokaskýrslunni koma fram sex tilmæli með tillögum að breytingum í kjölfar atviksins en meðal annars er mælt með því að NOTAM upplýsingar verði gerðar læsilegri og er lagt til að sérfræðingar verði fengnir til þess að endurskoða hvernig þær eru birtar.

Þá er lagt til að flugvél, sem er að koma inn til lendingar á flugvelli í B-loftrými, sé með búnað sem varar flugmenn við ef þeir eru ekki að koma inn til lendingar á réttri flugbraut og er farið fram á að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) vinni með framleiðendum til þess að innleiða slíkt kerfi.

Air Canada segir að flugfélagið hafi nú þegar gripið til aðgerða í kjölfar atviksins og þar á meðal með því að koma fyrir HUD (Heads-up Display) á nýjum Boeing 737 MAX og Airbus A220 þotum til að auðvelda flugmönnum aðflug að flugvöllum að næturlagi eða við slæmt skyggni.

Myndbandsupptaka af atvikinu ásamt hljóðupptöku úr flugturni:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga