flugfréttir
Tilraunaflugmenn frá EASA fljúga MC-21 þotunni
Rússneska MC-21 þotan flaug sitt fyrsta flug þann 28. maí árið 2017
Tilraunaflugmenn á vegum evrópskra flugmálayfirvalda (EASA) hafa tekið fyrsta skrefið í flugprófunum á rússnesku Irkut MC-21-300 þotunni.
Tveir tilraunaflugmenn og einn flugvirki frá EASA hafa verið þjálfaðir á þotuna sem
er hluti að því ferli að fá flughæfnisvottun fyrir þotuna fyrir Evrópu en fyrir fyrsta flugið
var flogið í flughermi áður en þeir voru látnir fljúga MC-21-300 þotunni sjálfri.
Meðal þeirra atriða sem voru æfð var flugtak, aðflug, lending, bæði í sjónflugi og blindflugi og
margvísleg önnur atriði með mismunandi stillingum á sjálfstýringu.
Oleg Kononenko, tilraunarflugmaður á MC-21 þotuna, segir að flugmenn EASA hafði
„masterað“ þotuna og náð tökum á henni á skömmum tíma og æfðu þeir nýlega
meðal annars aðferðir þar sem hætt er við aðflug og aðstæður þar sem líkt er eftir
mótormissi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.