flugfréttir

Reyndi að fá að hlaða símann í stjórnklefanum

- Flugstjórinn gafst upp á farþeganum og kallaði til lögreglu

28. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

Farþeginn, sem var ölvaður, reyndi ítrekað að fá að hlaða símann sinn inn í stjórnklefanum

Bera þurfti farþega frá borði á flugvellinum í Mumbai á Indlandi sl. mánudag eftir að hann reyndi ítrekað að komast inn í stjórnklefa á farþegaþotu af gerðinni Airbus A320 í þeim tilgangi að hlaða símann sinn.

Verið var að hleypa farþegum um borð í þotu IndiGo fyrir brottför til Kalkútta þegar einn farþeginn, sem var mjög ölvaður, gekk að stjórnklefanum og reyndi að komast inn á þeim forsendum að síminn hans var að verða batterílaus.

Farþeginn gerði nokkrar tilraunir til að fá að hlaða símann sinn þar til áhöfnin gerði honum grein fyrir að ekki væri hægt að hlaða síma í stjórnklefanum þar sem ekkert tengi væri fyrir símasnúri.

Farþeginn gafst ekki upp og hélt áfram þar til að þolinmæði flugstjórans var á þrotum og kallaði hann til lögreglu til að láta fjarlægja farþegann frá borði.

Lögreglan á flugvellinum tók við manninum og færði hann í yfirheyrslur en hann var látinn laus að lokum þar sem ekki var hægt að leggja fram neina ákæru þar sem hann hafði ekki brotið neitt af sér.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga