flugfréttir
Arkia í Ísrael fær fyrstu A321LR þotuna í stað Primera Air
- Airbus A321LR fær vottun fyrir þrjá viðbótareldsneytistanka
Primera Air hafði fengið fimm Airbus A321 þotur afhentar og var von á tveimur A321LR
Arkia Israeli Airlines verður fyrsta flugfélagið til þess að fá Airbus A321LR þotuna afhenta í stað Primera Air sem upphaflega átti að fá fyrsta eintakið.
Primera Air hafði pantað átta Airbus A321neo þotur og þar af tvær
A321LR þotur sem áttu að afhendast síðar á þessu ári en í apríl í vor var tilkynnt
að Primera Air yrði fyrsta flugfélagið til að fá þotuna í sínar hendur.
Í kjölfar gjaldþrots Primera Air hefur Airbus tilkynnt að það verði Arkia Israeli Airlines
sem fær fyrstu A321LR en félagið hefur pantað þrjár þotur af þeirri gerð.
Þá hefur verið tilkynnt um að Airbus A321neo hefur fengið vottun frá evrópskum flugmálayfirvöldum fyrir langflugi með
þremur viðbótareldsneytistönkum.
Airbus segir að A321LR geti flogið allt að 4.000 nm með 206 farþega og hefur þotan
fengið fjarflugsleyfi (ETOPS) upp á 180 mínútur sem þýðir að þotan má vera í allt að
3 tíma fjarlægð frá næsta flugvelli.
Þá kemur A321LR með nýrri útfærslu á neyðarútgöngum og
hámarksflugtaksþunga upp á 97 tonn.
Airbus segir að með vottun fyrir flugi með þrjá eldsneytistanka til viðbótar þá færist
þotan stóri skrefi nær því að koma á markaðinn.
Tölvugerð mynd af Airbus A321LR í nýjum litum Arkia Israeli Airlines
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.