flugfréttir

Fjórtán þotur Primera Air á jörðu niðri um víða Evrópu

- Síðasta flug Primera Air var flug frá Málaga til Kaupmannahafnar

3. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:46

Boeing 737 þotur Primera Air

Allar flugvélar Primera Air Scandinavia og Primera Air Nordic hafa verið frá því á mánudag kyrrar á jörðu niðri á mismunandi stöðum í Evrópu í í kjölfar gjaldþrot félagsins en floti félagsins taldi 14 þotur.

Primera Air Nordic, sem var skráð í Lettlandi, hafði fimm nýjar Airbus A321neo þotur í flota sínum sem hafa ekki náð eins árs aldri auk tveggja Boeing 737-800 þotna.

Primera Air Scandinavia, sem var skráð í Kaupmannahöfn, hafði sjö þotur sem allar voru af gerðinni Boeing 737-800 og Boeing 737-700.

Samkvæmt heimildum þá er búið að leggja flestum þotum Primera Air Scandinavia á Stansted-flugvellinum í London og á Charles de Gaulle í París en þá er ein Boeing 737-800 þota á flugvellinum í Kaupmannahöfn.

Í augnablikinu, klukkan 19:21, var verið að ferja eina Boeing 737-700 þotu frá Kaupmannahöfn vestur yfir haf en ekki er vitað hvert verið er að ferja þá vél samkvæmt vefsíðunni Flightradar24.com.

Síðasta áætlunarflugið í 15 ára sögu Primera Air var flug PF596 með Boeing 737-700 þotu (OY-PSG) frá Malaga til Kaupmannahafnar og lenti sú vél klukkan 00:11 að íslenskum tíma aðfaranótt 2. október en eftir það var engin önnur þota á vegum Primera Air í loftinu í áætlunarflugi.

Skjáskot af Flightradar24.com klukkan 19:37 sem sýnir eina af þotum Primera Air í ferjuflugi vestur um haf

Allar Airbus A321neo þoturnar fimm á vegum félagsins höfðu verið notaðar í flug yfir Atlantshafið milli Evrópu og Norður-Ameríku og flugu þær flestar sitt síðasta flug sl. mánudag frá Boston, Newark og Toronto yfir til London Stansted og Parísar.

Boeing 737-700 og -800 þotur Primera Air Nordic flugu sín síðustu flug frá Krít, Malága og Mallorca til Billund, Vínarborgar, Kaupmannahafnar og Stokkhólms.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga