flugfréttir
Fækka flugferðum um þriðjung vegna viðhalds á DXB
Airbus A380 risaþota Emirates
Emirates undirbýr sig nú fyrir tímabundinn niðurskurð í leiðarkerfi félagsins á næsta ári þar sem félagið neyðist til þess að fella niður næstum þriðjung allra flugferða á sex vikna tímabilið vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á flugvellinum í Dubai.
Frá og með 16. apríl 2019 fram í lok maímánaðar verður syðri flugbrautinni á Dubai-flugvellinum lokað vegna viðhalds
sem þýðir að aðeins ein flugbraut, nyðri flugbrautin, verður í notkun á þessum 3. stærsta flugvelli heims er kemur
að farþegafjölda og þeim stærsta í heimi er kemur að fjölda alþjóðafarþega.
Fram kemur að Emirates hafi þegar fellt niður flugferðir nú þegar í stað sem ekki er hægt að bóka á vefnum en flugfélagið
gerir ráð fyrir að fella niður 28% af öllu flugi á þessu 45 daga tímabili.
Um mikinn fjölda flugferða er að ræða en í fyrra flaug Emirates 514 flug að meðaltali á hverjum degi frá Dubai-flugvellinum
eða um 3.600 flug á viku.
Þá hefur lágafargjaldafélagið flydubai tilkynnt að félagið muni flytja hluta af starfseminni yfir á nýja Al Maktoum (Dubai
World Central) flugvöllinn á meðan að framkvæmdirnar standa yfir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.