flugfréttir

Atlantic Airways pantar aðra Airbus A320neo þotu

- Verða komnir með tvær A320neo þotur árið 2020

8. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:40

Airbus A319 þota Atlantic Airways á flugvellinum í Vágar í Færeyjum

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur gert samning við Airbus um leigu á annarri Airbus A320neo þotu og á félagið því von á að fá tvær nýjar A320neo þotur í flotann á næstu tveimur árum.

Atlantic Airways undirritaði samning um fyrstu A320neo þotuna í febrúar á þessu ári sem félagið mun fá í flotann árið 2019 en sl. föstudag, þann 5. október, var samningur um aðra A320neo þotu undirritaður í höfuðstöðvum félagsins á flugvellinum í Vágar í Færeyjum og verður þotan tekin á leigu frá flugvélaleigunni Air Lease.

Sú þota verður afhent til Atlantic Airways árið 2020 og mun hún einnig koma með RNP leiðsögutækninni sem stendur fyrir „Required Navigation Rerformance“ en núverandi Airbus A319 og A320 þotur félagins hafa RNP kerfið uppsett í dag sem auðveldar aðflugið að flugvellinum í Færeyjum.

Steven Udvar-Házy, framkvæmdarstjóri Air Lease, undirritar samning um leigu á Airbus A320neo þotu ásamt Jóhönnu í Bergi, framkvæmdarstjóra Atlantic Airways

Flugfélagið færeyska hefur í dag þrjár þotur í flotanum, tvær af gerðinni Airbus A319 og eina Airbus A320. Þegar flugfélagið verður búið að fá báðar Airbus A320neo þoturnar í flotann eftir tvö ár verður meðalaldur flotans tvö og hálft ár.

Stefna Atlantic Airways er að tengja Færeyjar enn betur við umheiminn og einnig að koma til móts við ört vakandi ferðamannastraum til eyjanna en fjöldi erlenda ferðamanna sem sækja eyjarnar heim fer stigvaxandi milli ára.

Árið 2017 fóru 341.388 farþegar um flugvöllinn í Færeyjum en til samanburðar þá voru 199.988 farþegar sem fór um flugvöllinn árið 2010.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga