flugfréttir

TF-MOG verður önnur Airbus A330neo þota WOW air

- TF-BIG verður fyrsta A330-900 þota félagsins

10. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:23

TF-MOG er önnur Airbus A330neo þotan sem smíðuð hefur verið sem WOW air mun fá afhenta síðar á þessu ári

Önnur Airbus A330neo þota WOW air er nýkomin út úr málningarskýli Airbus í Toulouse í Frakklandi.

Þotan ber í augnablikinu skráninguna
F-WWCU en verður á næstunni skráð sem TF-MOG þegar hún verður afhent til WOW air.

Sex mánuðir eru liðnir frá því að fyrsta Airbus A330neo þota WOW air var máluð í litum félagsins síðla hluta aprílmánaðar í vor en sú þota verður skráð sem TF-BIG.

Þoturnar eru tvær af þeim fjórum Airbus A330neo þotum sem WOW air pantaði í mars 2017 og koma þær með Trent 7000 hreyflum frá Rolls-Royce.

TF-MOG í Toulouse í dag, 10. október 2018

Airbus A330neo þoturnar sem WOW air á von á að fá, sem báðar eru af gerðinni Airbus A330-900, eru leigðar frá flugvélaleigunni CIT Aerospace í New York sem er dótturfyrirtæki CIT Group í Kaliforníu.

Seinkun hefur orðið á afhendingum á A330neo þotunum sem WOW air átti að fá afhentar fyrir lok ársins en von er á því að þær komi til landsins í febrúar 2019.

Airbus hefur fengið pantanir í 224 eintök af Airbus A330neo frá þrettán viðskiptavinum sem allir hafa pantað stærri útgáfuna, Airbus A330-900, en af þeim fáu flugfélögum sem höfðu pantað minni þotuna, A330-800, þá hafa allar þær pantanir verið afturkallaðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga