flugfréttir
Fyrsta Boeing 787 til sýnis í flugvélaskemmtigarði í Japan
- „Flight of Dreams“ opnar á flugvellinum í Nagoya á morgun
ZA001 var fyrst Dreamliner-þotan sem smíðuð var en hún er nú til sýnis í nýjum flugvélaskemmtigarði á flugvellinum í Nagoya í Japan
Japanir eru ekki þekktir fyrir að fara hefðbundnar leiðir í hugviti og nýjungum en á morgun mun opna risastór flugvélaskemmtigarður á Chubu Centrair International flugvellinum í borginni Nagoya þar sem fyrsta Dreamliner-þotan, sem smíðuð var, verður til sýnis.
Skemmtigarðurinn, sem nefnist Flight of Dreams er fjögurra hæða sýningarsvæði og verslunarkjarni þar sem fullt
af flugtengdum hlutum verða til sýnis en byggingin tengir flugstöðvarnar tvær saman á flugvellinum.
Hægt verður að fara í sýndarveruleikaferð um flugvélaverksmiðjur Boeing í Everett og skoða ZA001 sem er fyrsta
Boeing 787 þotan sem smíðuð var sem kom út úr verksmiðjunum í Everett þann 8. júlí árið 2007 og flaug sitt
fyrsta flug þann 15. desember árið 2009.
Ýmislegt sem tengist Seattle má finna í byggingunni en fjölmörg samstarfsfyrirtæki Boeing í flugvélaiðnaðinum hafa höfuðstöðvar
í Nagoya en 35% af öllum íhlutum og einingum í Dreamliner-þotuna og Boeing 777 eru smíðaðar í Japan.
Boeing gaf Japönum fyrsta eintakið af Dreamliner-þotunni sem smíðuð var og hefur hún verið
á flugvellinum í Nagoya frá árinu 2015 og verður hægt að skoða hana núna á Flight of Dreams og geta gestir farið um borð
í þotuna og skoðað m.a. stjórnklefann á meðan þeir bíða eftir flugi.
Hægt verður að fara í og prófa Boeing 787 flughermi, skoða varahluti og íhluti sem finna má í Dreamliner-þotunum og fara
á veitingastaði sem finna má í Seattle á borð við Starbucks, Pike Brewing, Fran´s
Chocolates og Beecher´s Cheese.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.