flugfréttir
Rangar upplýsingar um afkastagetu í flugtaki rannsakað
Flugvélar easyJet á Gatwick-flugvelli í London
Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi rannsaka nú enn annað atvikið hjá easyJet er varðar rangan útreikning fyrir flugtak.
Atvikið átti sér stað þann 30. september sl. er Airbus A319 þota frá easyJet var í flugtaki á Gatwick-flugvellinum í London
á leið til Seville en rannsóknaraðilar segja að um alvarlegt atvik hafi verið að ræða.
Talið er að flugmennirnir hafi slegið inn rangar upplýsingar um flugtaksafkastagetu í flugtölvu þotunnar (MCDU) fyrir brottför
en ekki kemur nákvæmlega fram hvaða upplýsingar voru að ræða.
Þotan sem átti í hlut tilheyrir easyJet Europe sem er nýstofnað dótturfélag easyJet í Austurríki með evrópskt
flugrekstarleyfi sem var sett á laggirnar vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.
Nokkur atvik hafa komið upp hjá easyJet varðandi ranga útreikninga fyrir flugtak og eru rannsakendur að skoða sambærileg
atvik sem komu upp á Luton-flugvellinum, í Málaga, Lissabon, Belfast og í Lille.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.